Ég hlusta oft á tónlist þegar ég vinn myndir. Stundum jazz,blús, danstónlist eða þjóðlagatónlist. Það er breytilegt hvað ég hlusta á, í þetta sinn hlustaði ég á Nocturne Op.9 nr.2 eftir Chopin í flutningi Arthur Rubinstein. Alveg dásamlegur konsertpíanisti.
Ég get hlustað á sama lagið aftur og aftur á meðan ég vinn. Það er leið til að gleyma mér alveg í hughrifunum sem það vekur við myndirnar. Friðsæld, sakleysi, litlir fingur og tær. Ég get kallað fram minninguna um yndislegu barnalyktina og mýkt húðarinnar er ég horfi á myndirnar á skjánum.
© 2014 Högurður