Það kemur oft fyrir að ég fæ íslenskar fjölskyldur sem búa erlendis í myndatöku til mín. Þá nýta þau tækifærið þegar þau koma til Íslands í heimsókn og fá fjölskyldumyndir í leiðinni. Ég fékk mjög skemmtilega fjölskyldu til mín um daginn. Þrjár systur sem voru svo klárar og glaðværar að það var erfitt að fá alvarlegar myndir af þeim.